Týndur í tíma
Asskoti var ég seigur. Einhvern veginn tókst mér að færa tímann fram um tvo tíma í staðinn fyrir einn eins og var fyrirskipað í gær. Mætti ég því klukkutíma of snemma upp í skóla og stóð skyndilega fyrir tómri kennslustofu. Þetta þýðir einnig að ég fór einum klukkutíma of snemma að sofa í gær og vaknaði einum klukkutíma of snemma í morgun. En núna veit ég allavega hvað tímanum líður.