Ferð til fjár
Ég hef ákveðið að gifta mig til fjár. Ég hef skráð mig á stefnumótasíðu þar sem ég auglýsi eftir vel stæðum kvenmönnum sem gætu hugsað sér að sjá um makann sinn fjárhagslega. Ég myndi að sjálfsögðu sjá um heimilið, þvo þvott, vaska upp, þrífa, elda mat og þess háttar. Hjónabönd eru jú aðallega praktísk.