Krepp
Hvað er að gerast á Íslandi?? Maður rétt bregður sér frá og það ætlar allt að fara fjandans til. Bandaríkjadollari hækkar um 5 krónur á dag og Ástralíudollarinn er ekkert að slaka á í útþenslu. Það styttist örugglega í að fólk getur farið að skeina sér með 1000 króna seðlum. Ég veit ekkert um hagfræði en ég get ekki annað en velt fyrir mér hvort þetta sé ekki eitthvað skrítið. Og hvað getur maður gert? Ekki neitt.