Endurvinnslan          <body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener("load", function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <iframe src="http://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID=8253453&amp;blogName=Endurvinnslan&amp;publishMode=PUBLISH_MODE_BLOGSPOT&amp;navbarType=BLUE&amp;layoutType=CLASSIC&amp;searchRoot=http%3A%2F%2Fendurvarpid.blogspot.com%2Fsearch&amp;blogLocale=is_IS&amp;homepageUrl=http%3A%2F%2Fendurvarpid.blogspot.com%2F" marginwidth="0" marginheight="0" scrolling="no" frameborder="0" height="30px" width="100%" id="navbar-iframe" allowtransparency="true" title="Blogger Navigation and Search"></iframe> <div></div>
 
  

Endurvinnslan

   

 
       
    

Skítur og Demantar

    sunnudagur, nóvember 22, 2009        
     
Er það kannski svo að allt sem er raunverulega einhvers virði er að öllu jöfnu svo óaðgengilegt að maður þarf að vera snarklikkaður til að feta sig í átt að því?

Það sem ég er að reyna að segja er að það er svo mikið að aðgengilegum skít en demantar eru faldir djúpt inni í einhverjum frumskógum í afríku (þar sem eru mannætur).
    
      
        
    

Plötur sem mótuðu mig Pt. 1. Michael Jackson - Bad (1987)

    föstudagur, nóvember 20, 2009        
     
Það var ekki fyrr en tveimur árum eftir útgáfu þessarar plötu að ég fékk hana í hendurnar, reyndar á kasettuformi. Ég var smávaxinn, tágrannur drengur í hvítum strigaskóm í sinni fyrstu utanlandsferð. Eftir að Bad var kominn í vasadiskóið var ekki aftur snúið. Mér fannst þetta hrikalega töff og réð hvergi við limi eða rödd og dansaði og söng með slögurum eins og Bad, Man in the Mirror og Smooth Criminal.

Að mínu mati er Bad einhver besta poppplata sem gefin hefur verið út og gott að ég uppgötvapi hana svona tiltölulega snemma, eða þegar ég var 8 ára. Ég læt fylgja hér nokkur minna þekkt lög af þessari mögnuðu plötu.



    
      
        
    

Það sem maður gerir ef maður hefur ekkert betra að gera

    miðvikudagur, nóvember 18, 2009        
     
10. fer í viðskiptafræði
9. Les spennusögu eftir sænskan rithöfund
8. Hringir á útvarp Sögu
7. Fer í stjórnmál
6. verslar í Tiger
5. öppdeitar status á Facebook
4. spilar Friends spilið
3. pantar sér rússneska póstbrúður
2. lærir kínversku
1. Gerir lista um það sem maður gerir ef maður hefur ekkert betra að gera
    
      
        
    

Svo þú heldur að þú getir verið óþolandi?

    mánudagur, nóvember 16, 2009        
     
Það eina sem raunveruleikasjónvarp hefur kennt okkur er að fólk verður óþolandi þegar myndavélum er stillt upp fyrir framan það.

Þessi hugsun flaug í gegnum huga minn þegar ég horfði með sársauka á "dansþáttinn" So you think you can dance sem er klárlega malbikspizza dagsins.
    
      
        
    

China Rises

    sunnudagur, nóvember 15, 2009        
     
Ég er kominn á bólakaf í magnaða heimildarmynd um Kína sem hægt er að horfa á á Youtube. Kína er það land sem hefur verið í hvað mestri framþróun undanfarin ár og er hagkerfið þeirra að stækka með hverju árinu. Þessi heimildarmynd fjallar um hvaða áhrif þessi hagvöxtur og framþróun hefur fyrir fólk þessa fjölmennasta lands í heimi. Það er ein spurning sem mér finnst áhugaverð í sambandi við þetta og það er hvort að rík þjóð sé endilega betri þjóð. Vissulega hafa lífsskilyrði batnað til muna fyrir fullt af fólki. En það er hugsanlegt að þegar það að verða ríkur er orðið markmið í sjálfu sér að önnur mannlegri og innihaldsríkari gildi gleymist. En bara hugleiðing, ég mæli eindregið með þessari mynd.

Sjálfur hugsa ég mér gott til glóðarinnar á frægðarför til drekans í austri. Maður verður nú að vera vinveittur Kínverjunum þar sem þeir eru jú að fara að taka yfir heiminn. Zai jian.
    
      
        
    

Heimurinn eða þar um bil

            
     
Þegar maður var lítill strákur fannst manni heimurinn svo flókinn. Maður skildi ekki hvernig þetta fullorðna fólk gat verið í vinnu, eignast börn og farið til útlanda. Þvílíkir kraftar! Maður hélt að pólitík væri borg í Pólland. En í dag er maður smátt og smátt að ná meira utan um hvað er að gerast. Og það er ekki að maður sé að verða gáfaðri og gáfaðri heldur er maður að komast að því hvað þetta er mikil tálsýn. Heimurinn er nefninlega sára einfaldur.
    
      
        
    

Caché

    föstudagur, nóvember 13, 2009        
     
Þessa mynd var ég að horfa á. Ég hafði áhuga á henni því hún er eftir sama leikstjórann og gerði Funny Games. Eins og maður bjóst við er enginn Will Ferrell í þessari mynd og það er mikil jarðarfarastemning sem svífur yfir vötnum. Mér fannst hún engu að síður töluvert mögnuð og spennandi.




Hin myndin sem ég horfði á nýlega heitir The Maid og er hrollvekja frá Singapore. Í henni er mikill hamagangur og sótt illilega að saklausri húshjálparstelpu. Hávaðinn og djöfulgangurinn skelkaði mann alveg aðeins en þetta varð full kjánalegt undir lokin.
    
      
        
    

Náttúran kallar

    miðvikudagur, nóvember 11, 2009        
     
Stundum segir líkaminn minn eftirfarandi við mig "Hjalli, þú þarft að fara að maka þig með kvendýri". Það er augljóst að líkami minn vill að ég frjói kvenmann með sæði mínu. Allt í umhverfi mínu segir mér að leita uppi þennan kvenmann. Ég held samt að það sé ekki beinasta leiðin að minni hamingju. Það er gamall graður api inní mér sem ég nenni stundum ekki að hlusta á, enda er hann bara með eitt á heilanum.
    
      
        
    

I'm a Cyborg but that's ok (2007)

    þriðjudagur, nóvember 10, 2009        
     
Hér er brot úr þessari stórskemmtilegu mynd eftir leikstjórann sem gerði Oldboy og fleiri eðal myndir frá Kóreu. Þessi gerist að miklu leyti á geðdeild og inni í höfðinu á ungri stúlku sem heldur að hún sé vélmenni. Hægt er að nálgast myndina í fullri lengd á Youtube.

    
      
        
    

Töffararokk

            
     
Smá töffararokk í kroppinn hefur engan skaðað.



    
      
   
  

time life music
time life music