North Country (2005)
Þessi mynd sem skartar mikið af góðum leikurum fjallar um kynjamisrétti og þá kúgun og niðurlægingu sem nokkrar konur máttu þola í námavinnu einni í Minnesota í Bandaríkjunum.
Ég var nokkuð spenntur fyrir þessari mynd þar sem mér finnst umfjöllunarefnið mjög áhugavert. Þetta er líka bara nokkuð fín mynd. Hún sýnir mjög bersýnilega hvernig konur sem tóku að sér "ókvenleg" störf mættu fordómum og niðurlægingu úr öllum áttum, jafnvel frá nánustu ættingjum. Myndin er rosalega áhrifarík og togaði vel í tárkirtlana. Gallinn var kannski að hún fór ef til vill eitt skref yfir strikið í dramatík sem breyttist því í væmni. Annars er þetta bara mjög áhugaverð mynd og vel leikin sem ég mæli alveg með.