The Like - Are you thinking what I'm thinking? (2005)
The Like er stúlknatríó sem hefur aðsetur í sólinni í Los Angeles. Þær eru að leika sér með rokkið en halla sér kannski lítillega í poppið í leiðinni. Þetta er fyrsta platan þeirra.
Platan byrjar vel á laginu 'June Gloom' og ágætis lög fylgja í kjölfarið. Þegar líður á diskinn og hið fína 'Under the paving Stones' endar er eins og maður sé að heyra sama lagið aftur og aftur og þolinmæðin þrýtur. Það er full mikil einsleitni í þessu hjá The Like á köflum og þar sem þær eru nú ekkert að brjóta neinar reglur í lagasmíðum þá missti ég fljótlega áhugann. Ég ætla þó ekki að segja að þetta sé slæm plata, þetta er til dæmis flott sungið og flott sánd hjá þeim, bara náði ekki að hrífa mig nægilega.
6/10