Observe and Report (2009)
Ég gerðist flippaður og keypti mér miða á þessa mynd fyrir einungis 500. ísl.kr. Mér fannst hún sæmileg, húmorinn hefði mátt vera beittari. Mér fannst til dæmis ofbeldi full mikið notað sem grín. En annars hafði ég ágætlega gaman að henni á köflum og til þess er hún. Þeir sem veigra ekki fyrir sér barsmíðar og óheflaðan orðaforða ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.