Killshot
Smeygði mér á þessa mynd með tveimur skjólstæðingum af deildinni. Var þetta ekki merkileg filma og bara ótrúlega eitthvað venjuleg og frekar leiðinleg spennu/drama mynd. Ástæðan fyrir því að mér fannst hún leiðinleg var að ég sá ekkert point í neinu sem var að gerast. Það sem gerði það að verkum að myndin var ekki hræðileg var að þarna eru ágætis leikarar.
Annars á Regnboginn heiður skilið að bjóða kvikmyndir á 750 kall.