Vampire Weekend
Fyrsta stóra plata ársins er líklega önnur plata Vampire Weekend en hún nefnist Contra. Vampire Weekend komu sterkir til leiks snemma árs 2008 með samnefnda plötu og unnu þeir það sér til frægðar að hressa fólk með hnyttnum laglínum og textum. Á nýju plötunni er svipaða hressingarformúlu að finna og sýnist mér fólk vera að taka þessari plötu vel. Mér finnst allavega bráðhressandi lagið White Sky. Tjekkið á því og fyrsta singlinum líka.