Shutter (2004)
Ég horfði á þessa tælensku hrollvekju á Youtube og hafði nokkuð gaman af. Þetta er frekar hefðbundin hrollvekja og mjög í ætt við The Ring. Hún er hins vegar það vel gerð og óhugnanleg að ég lét alveg hræða mig smávegis. Einnig hef ég heyrt að Hollywood ætli hugsanlega að endurgera þessa mynd. Ef þið þorið að horfa á hana er hægt að horfa á hana í fínum gæðum hér: