The Great Ocean Road
Þá er ég kominn heim úr svaðilför þar sem ég og Pétur þræddum strandlengjuna vestur af Melbourne á veg þeim er við mikla sjó er kenndur. Þetta var mikill akstur en var þess virði, sérstaklega þegar við komum að vinsælu túristastoppi sem kallast "The 12 apostles". Þar er átt við kletta sem standa í sjávarmálinu. Við náðum þar nokkuð flottum myndum þegar sólin var að setjast. Góður dagur. It was a good day mate! Svo að Pétur skilji nú eitthvað.