Dreymandi Pfeiffer
Þetta var einmitt það sem ég þurfti. Góður og langur svefn með mikið af undarlegum draumum. Um daginn dreymdi mig að ég var í Skífunni og Michelle Pfeiffer mætti þangað inn og var að árita. Ég stökk til og náði í eintakið mitt af "Frankie & Johnny" en einhverra hluta vegna náði ég ekki í röðina. Ég fékk því manneskju til að fara fyrir mig. Á leiðinni heim tók ég myndina úr vasanum og þá stóð frekar dauft á hulstrinu: Megas.