Umferðarljósin á kvöldin
Stundum er mikil kyrrð fólgin í því að keyra um götur bæjarins á kvöldin. Umferðarljósin, þau þjóna sínum tilgangi samviskusamlega ásamt að gefa okkur skemmtilega liti í umhverfið. Finna hönd sína á stýrinu. Fara í hálfhring inn á Reykjanesbraut. Hlusta á andardrátt sinn sem stundum virðist það eina vissa í heimi hér. Og auðvitað með glæpamannarappið í botni.