Úlfar
Það er fokið í flest skjól þegar Hjálmar S. Ásbjörnsson hefur keypt sér lottómiða. En ég held að það sé bara við hæfi í dag. Ég ætla að reyna á gamalt spakmæli. Heppinn í spilum, óheppinn í ástum. Samt er ég aðeins að svindla því það besta sem komið hefur fyrir ástarlífið mitt er að vera ólofaður. Ég finn hvernig ástin bólgnar upp í brjósti mér og bíður eftir að springa í fésið á þér.