Breaking news!
Já ég er búinn að skoða í hvaða átt vatn rennur í niðurföllum hérna í Ástralíu. Niðurstöðurnar hafa leitt í ljós að vatn rennur réttsælis hérna megin heimsins. Hvort þetta er í samræmi við fyrirframgefnar hugmyndir niðurfallsvísindamanna veit ég ekki. Nú er um að gera að sturta niður klósettinu og láta mig vita hvort vatnið rennur ekki örugglega rangsælis þarna uppi á klaka.