Requiem for a Dream (2000)
Þvílíkt meistaraverk. Ég hef sjaldan séð eins magnaðan leik og hjá Ellen Burstyn í þessari mynd. Myndin fjallar í stuttu máli um fíkn fjögura einstaklinga og hvernig sú fíkn leiðir til ömurlegra örlöga fyrir þau öll. Kannski ágætis forvarnarmynd, ég veit það ekki. Kannski það magnaðasta við þessa mynd er að persónurnar taka allar rangar ákvarðanir en maður finnur samt að þetta er gott fólk, innst inni. Það hefur bara villst af veginum vegna ýmisa þátta sem það réð ekki við. Og þess vegna er svo erfitt að horfa á þegar þessar persónur lenda á botninum á tilveru sinni. Hrikalega magnþrungin mynd, áhrifamikil, stórkostlega leikin, skotin og tónlistin stórkostleg. Bara sem dæmi um frábæra senu í þessari mynd er þegar Marion (Jennifer Connelly) er nýbúin að selja sig fyrir dóp og hún liggur með hausinn á kafi í baði. Myndavélin er á henni, hún er alveg hreyfingarlaus. Svo skyndilega brýst út úr henni örvæntingafullt öskur. Klippt.