2012
Ég skellti mér á þessa og fannst mér hún ágæt. Stundum er bara í lagi að myndir séu kjánalegar og mér fannst ágætt að horfa á þetta á meðan ég skóflaði í mig poppkorni. Þeir sem voru að búast við gáfulegri mynd um jarðfræði og fjölskyldu-dýnamík eru eitthvað að misskilja Roland Emmerich. Woody Harrelson kom líka sterkur og skemmtilegur inn í flippuðu hlutverki.