Bruno
Svei mér var ég ánægður með kvikmyndina Bruno. Það er ansi magnað hvað hommafóbía grasserar ennþá víða. Og líka gaman að sjá Baron-Cohen gera grín af karlrembum sem þurfa reglulega að gera eitthvað "karlmannlegt" til að viðhalda karlmennskunni. En þessi kvikmynd er óborganleg og skemmtilega ósmekkleg. Alveg eins og maður vill hafa það þegar austurríska kyntröllið er annars vegar.